HM kvenna – leikdagur 6: Úrslit dagsins

Magdalena Stysiak leikmaður Póllands skoraði 26 stig í sigri liðsins á Þýskalandi

Sjötta keppnisdegi á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi er lokið.

8 leikir voru á dagskrá í dag og má sjá úrslitin hér:

Tyrkland – Kanada 3-0 (25–21, 27–25, 25–13)

Stigahæst í leiknum var Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands með 16 stig. Stigahæst í liði Kanada var Nyadholi Thokbuom með 12 stig.

Kólumbía – Mexíkó 2-3 (22–25, 25–22, 23–25, 25–18, 12–15)

Stigahæst í leiknum var Sofia Maldonado Diaz leikmaður Mexikó með 33 stig. Stigahæst í liði Kólumbíu var Ana Karina Olaya Gamboa með 27 stig.

Japan – Serbía 3-1 (25–23, 30–28, 23–25, 25–18)

Stigahæst í leiknum var Aleksandra Uzelac leikmaður Serbíu með 20 stig. Stigahæst í liði Japan var Mayu Ishikawa með 19 stig.

Kenía – Víetnam 3-0 (25–23, 25–22, 25–18)

Stigahæst í leiknum var Veronica Adhiambo Oluoch leikmaður Kenía með 19 stig. Stigahæst í liði Víetnam var Thi Nhu Quynh Vi með 12 stig.

Kína – Dóminíska Lýðveldið 3-0 (25–15, 25–21, 25–17)

Stigahæst í leiknum var Mengjie Wu leikmaður Kína með 16 stig. Stigahæst í liði Dóminíska Lýðveldisins var Brayelin Elizabeth Martinez með 15 stig.

Búlgaría – Spánn 1-3 (22–25, 14–25, 25–22, 18–25)

Stigahæst í leiknum var Maria Segura Palleres leikmaður Spánar með 17 stig. Stigahæst í liði Búlgaríu var Miroslava Paskova með 16 stig.

Úkraína – Kamerún 3-0 (25–17, 25–21, 25–20)

Stigahæst í leiknum var Carine Blamdai leikmaður Kamerún með 14 stig. Stigahæst í liði Úkraínu var Diana Meliushkyna með 13 stig.

Pólland – Þýskaland 3-2 (21–25, 25–15, 19–25, 28–26, 19–17)

Stigahæst í leiknum var Magdalena Stysiak leikmaður Póllands með 26 stig. Stigahæst í liði Þýskalands var Lina Alsmeier með 19 stig.

Leikir í 16 liða úrslitum (Mynd: Volleyball World)
Þá er riðlakeppni mótsins lokið og næstu leikir eru í 16 liða úrslitum.

Leikir í 16 liða úrslitum 29.ágúst eru eftirfarandi:

  • Holland – Serbía, 10:00
  • Japan – Tæland, 13:30