Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Vestra í eina leik dagsins í Unbroken deild karla. Leikurinn var afar jafn og bráðskemmtilegur.
Þróttarar frá Neskaupstað hafa byrjað deildarkeppnina afar vel og unnið alla þrjá leiki sína. Þeir unnu HK í fyrsta leik sínum og unnu svo tvívegis í Laugardalshöll þegar þeir mættu Þrótti Reykjavík. Vestri hefur sömuleiðis byrjað vel og vann báða leiki sína gegn HK um síðustu helgi. Þetta voru jafnframt einu taplausu lið deildarinnar fyrir leik dagsins.
Fyrsta hrina var hnífjöfn hjá liðunum og varð munurinn aldrei meiri en tvö stig út alla hrinuna. Eftir æsispennandi lokakafla unnu heimamenn sigur eftir upphækkun og tóku 1-0 forystu. Heimamenn byrjuðu vel í annarri hrinu en smám saman tóku gestirnir völdin á vellinum. Vestri skoraði fimm stig í röð um miðja hrinu og virtust gestirnir ætla að sigla heim þægilegum sigri. Þróttur F átti hins vegar frábæran lokakafla og var hársbreidd frá því að stela sigri í hrinunni. Eftir miklar sveiflur vann Vestri þó eftir aðra upphækkun og staðan orðin jöfn 1-1.
Þriðja hrina var jöfn framan af en Þróttur Fjarðabyggð náði forystunni aftur eftir nauman sigur. Vestri kom vel inn í fjórðu hrinu þar sem liðið þurfti að vinna til að halda lífi í leiknum. Gestirnir leiddu allt frá upphafi hrinunnar og unnu hana þrátt fyrir góða endurkomu Þróttar undir lokin. Það var mikil spenna í oddahrinunni enda toppsætið undir. Þróttur virtist hafa yfirhöndina í oddahrinunni en Vestri átti öflugan lokakafla, skoraði þrjú síðustu stigin og tryggði sér þar með 2-3 sigur. Vestri fer þar með í toppsæti deildarinnar og er með 8 stig eftir þrjá leiki. Þróttur F er í öðru sætinu, einnig með 8 stig en eftir fjóra leiki.
Lítið er um leiki í Unbroken deildunum þessa dagana, að hluta til vegna landsliðsverkefna unglingalandsliða Íslands. Hamar og Þróttur Reykjavík mætast þriðjudag 13. október en næstu leikir karlamegin fara fram 24. október. Kvennamegin heldur keppni áfram næstu helgi þegar alls fara sex leikir fram yfir laugardag og sunnudag.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla
Þróttur Fjarðabyggð 2-3 Vestri (29-27, 25-27, 25-23, 22-25, 13-15)