Pólland er Evrópumeistari 2026 !

Pólland og Frakkland mættust í úrslitaleik Evrópumóts karla í kvöld. Leikið var í Mílanó á Ítalíu fyrir framan 11.000 áhorfendur. Pólland vann 3–1 og varði þar með Evrópumeistaratitil sinn.

Pólverjar unnu hrinurnar 31–29, 25–19 og 25–16, en Frakkar unnu þá þriðju 25–20. Fyrsta hrinan var sú jafnasta í leiknum. Hún stóð í 40 mínútur og lauk með 31–29 sigri Póllands. Pólverjar fylgdu því eftir með 25–19 sigri í annarri hrinu og voru þá komnir í vænlega stöðu gegn Frökkum, ríkjandi Ólympíumeisturum.

Frakkar gáfust þó ekki upp. Þeir unnu þriðju hrinuna 25–20 og héldu voninni um titilinn á lífi. Í fjórðu hrinu tóku Pólverjar aftur yfirhöndina og tryggðu sér sigurinn með sannfærandi 25–16 sigri.

Mathis Henno var stigahæstur allra leikmanna með 20 stig fyrir Frakkland og liðsfélagi hans, Théo Faure, skoraði 18. Stigin dreifðust jafnar hjá Póllandi, Bartłomiej Bołądź skoraði 16 stig og Wilfredo León og Tomasz Fornal 13 hvor.

Með sigrinum varð Pólland fyrsta karlaliðið til að verja Evrópumeistaratitilinn síðan Ítalía vann keppnina árin 2003 og 2005. Pólland tryggði sér einnig sæti á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028.

Draumalið mótsins var að venju opinberað eftir úrslitaleikinn

MVP: Wilfredo Leon Venero (POL)
Opposite: Théo Faure (FRA)
Setter: Antoine Brizard (FRA)
Middle Blocker: Bartlomiej Lemanski (POL) and Szymon Jakubiszak (POL)
Libero: Jakub Popiwczak (POL)
Outside Hitters: Wilfredo Leon Venero (POL) and Nooa Marttila (FIN)
Coach: Nikola Grbic (SRB/Poland)