Pólland og Frakkland tryggðu sér í dag sæti í úrslitaleik Evrópumóts karla. Pólverjar lögðu Slóvena í þremur hrinum í fyrri undanúrslitaleiknum í Mílanó, en Frakkar höfðu betur gegn Finnum í þeim síðari.
Pólland vann Slóveníu 3–0 (25–23, 25–23, 25–18). Fyrstu tvær hrinurnar voru jafnar og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokastigunum. Slóvenar náðu 7–4 forystu í þriðju hrinu, en Pólverjar sneru stöðunni við og tryggðu sér sigurinn.
Bartłomiej Bołądź var stigahæstur Pólverja með 14 stig. Nik Mujanović skoraði flest stig Slóvena, 20 talsins.
Í síðari undanúrslitaleiknum sigraði Frakkland Finnland 3–1 (25–17, 18–25, 25–18, 25–15). Bæði lið sýndu frábæra takta bæði varna og sóknarlega en það voru þeir frönsku sem höfðu betur í fyrstu hrinu. Finnar, sem höfðu slegið Ítali út í átta liða úrslitum, jöfnuðu leikinn með sigri í annarri hrinu en Frakkar tóku hins vegar frumkvæðið á ný og unnu næstu tvær hrinur nokkuð sannfærandi.
Mathis Henno var stigahæstur Frakka með 21 stig, en Luka Marttila skoraði flest stig Finna, 13.
Frakkland og Pólland leika því til úrslita, en Finnland og Slóvenía mætast í leik um bronsverðlaunin.