Í gærkvöldi fóru fram fyrstu tveir leiki í Unbroken deildunum þegar Þróttur R tók á móti KA bæði í karla og kvennaflokki.
Fjörið hófst á viðureign liðanna í karlaflokki og var um hörkuleik að ræða. Hjá Þrótti voru tveir nýir erlendir leikmenn, þeir Michal Nowakowski og Michal Marszalek en þá hafði Kjartan Fannar Grétarsson reimað á sig skóna á ný. Hjá KA voru Juan Manuel Balnquer, Sigurður Helgi og Jorge Sanz Mora allir komnir frá Völsungi. Ágúst Leó Sigurfinnsson var frá vegna meiðsla.
Gestirnir frá Akureyri byrjuðu leikinn betur og unnu fyrstu hrinuna 25-22 en Þróttur jafnaði strax í annarri hrinu 25-18. Bæði lið sýndu góða spretti og ljóst að liðin munu herja mikla baráttu í vetur. Heimamenn í Þrótti reyndust svo sterkari í þriðju og fjórðu hrinu sem lauk með sigri Þróttar, 25-21 og 21-18.
Strax í kjölfarið fór fram leikur liðanna í kvennaflokki en þar hafði KA betur 3-0 (25-20, 25-23, 25-18). KA mætti með nokkuð breytt lið frá því í fyrra en Jóna Margrét Arnarsdóttir, Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir og Auður Pétursdóttir hafa allar róað á önnur mið. Kristey Marín Hallsdóttir og Inga Björg Brynjúlfsdóttir komu þá til liðsins frá Völsungi. KA fer vel af stað í vetur en liðið tryggði sér á dögunum titilinn Meistarar Meistaranna eftir sigur á HK.
Næstu leikur í Unbroken deildunum fara fram um helgina þegar Þróttur Fjarðarbyggð tekur á móti HK bæði í karla og kvennaflokki.