HM kvenna – leikdagur 3: Úrslit dagsins

Gabi stórstjarna Brasilíu sækir í leik gegn Frakklandi. (Mynd: Volleyball World)

Þriðja keppnisdegi á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi er lokið.

8 leikir voru á dagskrá í dag og má sjá úrslitin hér:

Tékkland – Slóvenía 3-2 (22–25, 19–25, 25–23, 25–18, 15–13)

Stigahæst í leiknum var Monika Brancuska leikmaður Tékklands með 24 stig. Stigahæst í liði Slóveníu var Fatoumatta Sillah með 23 stig.

Púertó Ríkó – Grikkland 1-3 (19–25, 13–25, 25–23, 14–25)

Stigahæst í leiknum var Martha Evdokia Anthouli leikmaður Grikklands með 27 stig. Stigahæst í liði Púertó Ríkó var Valeria Vazquez Gomez með 14 stig.

Holland – Egyptaland 3-0 (25–15, 25–13, 25–13)

Stigahæst í leiknum var Nicole Van De Vosse leikmaður Hollands með 12 stig. Stigahæst í liði Egyptalands var Mariam Metwally Mohamed Morsy með 9 stig.

Ítalía – Kúba 3-0 (25–9, 25–8, 25–16)

Stigahæst í leiknum var Paola Ogechi Egonu leikmaður Ítalíu með 12 stig. Stigahæst í liði Kúbu var Dezirett De La Caridad Madan Rosales með 8 stig.

Bandaríkin – Argentína 3-1 (25–14, 23–25, 25–12, 25–17)

Stigahæst í leiknum var Bianca Cugno leikmaður Argentínu með 29 stig. Stigahæstar í liði Bandaríkjana voru Dana Rettke og Sarah Franklin með 15 stig hvor.

Brasilía – Frakkland 3-2 (21–25, 20–25, 25–15, 25–17, 15–13)

Stigahæst í leiknum var Héléna Cazaute leikmaður Frakklands með 20 stig. Stigahæst í liði Brasilíu var Gabriela Braga Guimaraes (Gabi) með 18 stig.

Tæland – Svíþjóð 3-0 (25–18, 25–20, 25–22)

Stigahæst í leiknum var Isabelle Haak leikmaður Svíþjóðar með 25 stig. Stigahæst í liði Tælands var impichaya Kokram með 23 stig.

Belgía – Slóvakía 3-0 (25–19, 25–17, 25–18)

Stigahæst í leiknum var Britt Herbots leikmaður Belgíu með 21 stig. Stigahæst í liði Slóvakíu var Tereza Hrusecka með 13 stig.

Britt Herbots leikmaður Belgíu sækir að hávörn Slóvakíu (Mynd: Volleyball World)

Leikir morgundagsins eru þessir:

  • Kanada – Spánn, 09:00
  • Dóminíska Lýðveldið – Mexikó, 09:00
  • Japan – Úkraína, 10:00
  • Þýskaland – Víetnam, 10:00
  • Tyrkland – Búlgaría, 12:30
  • Kína – Kólumbía, 12:30
  • Serbía – Kamerún, 13:30
  • Pólland – Kenía, 13:30