EM kvenna farið af stað

Lokakeppni EM hófst í gær með átta leikjum og verður leikið afar þétt næstu daga. Úrslit gærdagsins voru nokkurn veginn eftir bókinni en nokkur stórlið hófu leik í gær.

Evrópumót kvenna fer fram í fjórum löndum en leikið er í Svíþjóð, Tékklandi, Tyrklandi og Azerbaijan. Hver þjóð heldur sinn riðil en leikið er í fjórum sex liða riðlum. Lokaleikirnir fara fram fyrstu helgina í september en þá verður leikið í Istanbúl, Tyrklandi.

Flestum leikjum gærdagsins lauk með 3-0 sigrum en heimakonur í Tékklandi unnu 3-1 sigur á Grikklandi og Azerbaijan vann 3-1 sigur á Portúgal á heimavelli. Isabelle Haak fór fyrir sænska liðinu sem vann sannfærandi sigur í Gautaborg.

Flesta leikdaga riðlakeppninnar fara fram átta leikir og verður því nóg um að vera fyrir áhugasama áhorfendur. Fjögur lið fara áfram úr hverjum riðli en tvö lið ljúka keppni strax eftir riðlakeppnina. Riðlakeppni lýkur 28. ágúst en útsláttarkeppni hefst svo strax 30. ágúst. Þá verður leikið í 16-liða úrslitum.

A-riðill

Tyrkland 3-0 Lettland (25-17, 25-16, 25-16). Melissa Vargas var stigahæst hjá Tyrklandi með 19 stig.

B-riðill

Austurríki 0-3 Serbía (17-25, 9-25, 21-25). Tijana Boskovic (Serbía) og Anamarija Galic (Austurríki) skoruðu 11 stig hvor.

Búlgaría 3-0 Úkraína (25-23, 25-23, 25-20). Mikaela Stoyanova skoraði 14 stig fyrir Búlgaríu.

Tékkland 3-1 Grikkland (25-14, 23-25, 25-15, 25-20). Monika Brancuska átti stórleik og skoraði 23 stig fyrir Tékkland.

C-riðill

Azerbaijan 3-1 Portúgal (25-22, 23-25, 27-25, 25-20). Yelizaveta Ruban var stigahæst hjá heimakonum með 25 stig.

D-riðill

Frakkland 3-0 Slóvakía (25-13, 25-21, 25-13). Cyrielle Depie skoraði 15 stig fyrir Frakkland.

Króatía 0-3 Ítalía (9-25, 22-25, 23-25). Ekaterina Antropova skoraði 21 stig fyrir Ítalíu.

Svíþjóð 3-0 Svartfjallaland (25-13, 25-18, 25-23). Isabelle Haak átti enn einn stórleikinn og skoraði 30 stig fyrir Svíþjóð.