Borja Gonzales Vicente tekur við Aftureldingu á nýjan leik

Þjálfarateymi Aftureldingar

Borja Gonzales Vicente hefur tekið við karla og kvennaliðum Aftureldingar á nýjan leik eftir 2 ára fjarveru.

Borja kom fyrst til Aftureldingar 2019 þegar hann tók við kvennaliði félagsins og hefur síðan þá orðið bæði Íslandsmeistari (2021) og Bikarmeistari (2024).

Honum til aðstoðar verða þau Elsa Sæný Valgeirsdóttir með karlaliðið og Atli Fannar  Pétursson með kvennaliðið.