Úrslitaleik í Volleyball Nations League (VNL) kvenna lauk í dag en loka helgin fór fram í Macao í Kína.
Tyrkland mætti þar Brasilíu í hörku spennandi úrslitaleik. Tyrkland kom í úrslitaleikinn með mikið sjálfstrausti eftir 3–0 sigur á Kína í undanúrslitum á meðan Brasilía þurfti að hafa meira fyrir hlutunum en þær mættu Ítalíu og höfðu þar betur 3-2.
Í úrslitaleiknum í dag byrjaði Brasilía betur og vann fyrstu hrinu 25–23 með öflugum uppgjöfum og góðum sóknarleik. Tyrkland jafnaði í annarri hrinu, fann betri takta í móttöku og sókn og endaði sú hrina einnig 25-23. Þriðja hrinan leiksins var dramatísk, liðin skiptust á að leiða og hrinan fór í upphækkun þar sem Tyrkland hafði að lokum betur 26–24. Í fjórðu hrinu héldu Tyrkir áfram að góðri pressu, bættu enn frekar varnarleik sinn og kláruðu hrinuna 25–23.
Lokaniðurstaðan því 3–1 sigur hjá Tyrklandi (23–25, 25–23, 26–24, 25–23). Með sigri sínum var Tyrkland að vinna sín önnur gullverðlaun í VNL en þær urðu einnig meistarar árið 2023. Tyrkir eru með sigrinum heldur betur að láta vita af sér sem eitt af sterkustu landsliðum í kvennablakinu í dag.
Brasilía, sem er eitt sigursælasta landslið heims í blaki, endaði aftur í öðru sæti og bíður enn eftir sínum fyrsta gulli í VNL, þrátt fyrir að hafa farið margoft í úrslit.

Stigahæst í leiknum í dag var Melissa Vargas leikmaður Tyrklands með 33 stig, þar af 27 úr sókn. Stigahæst í liði Brasilíu var Ana Cristina með 25 stig.
Í þriðja sæti varð svo Ítalía sem hafði betur 3-1 gegn Kína fyrr í dag.