Íslensku strákarnir í U18 eru nú á lokakaflanum á Evrópumótinu sem fram fer í Porto San Giorgio á Ítalíu. Leikur dagsins var gegn Finnlandi.
Ísland hafði leikið vel í mörgum af leikjum sínum en vantaði herslumuninn gegn sterkustu liðum Evrópu. Fyrsta hrina gegn Finnlandi var nokkuð góð en íslenska liðið byrjaði betur. Þeir finnsku unnu sig smám saman inn í leikinn þegar leið á hrinuna og unnu hana nokkuð sannfærandi. Næsta hrina var æsispennandi en aftur byrjaði Ísland betur. Í þetta skiptið leiddu íslensku strákarnir alla hrinuna og unnu hana en það er fyrsta hrina sem íslenskt landslið vinnur á lokamóti EM. Glæsilega spilað hjá strákunum en mikið eftir af leiknum.
Finnland lék vel í þriðju hrinunni og hafði forystuna nánast frá upphafi. Finnska liðið vann þó nauman sigur og leiddi 1-2. Ísland byrjaði fjórðu hrinu frábærlega og gátu tryggt sér oddahrinu en allt kom fyrir ekki. Finnland tók völdin smám saman og tryggði sér 1-3 sigur í leiknum.
Ísland 1-3 Finnland (19-25, 25-22, 21-25, 17-25). Ágúst Leó Sigurfinnsson skoraði 20 stig en Hákon Freyr Arnarsson kom næstur með 12 stig.
Lokaleikur íslensku drengjanna fer fram á morgun þegar þeir mæta Grikklandi klukkan 13:00. Þeir munu ekki komast á næsta stig keppninnar en eftir riðlakeppnina er farið beint í undanúrslit. Leikið verður til úrslita um helgina.