Ísland tekur þátt í strandblaksmóti í Andorra

Þessa helgina fer fram strandblaksmót á vegum SCA (Smáþjóðadeild Blaksambands Evrópu). Leikið er í flokki U19 og sendir Ísland eitt lið í karlaflokki. Keppni í kvennaflokki fer fram á sama stað um næstu helgi.

Mótið er það fyrsta þetta landsliðssumarið en bræðurnir Sölvi og Svanur Hafþórsson mynda öflugt teymi fyrir hönd Íslands. Pedro Dupuy de Lome er þjálfari liðsins. Þjóðirnar sem taka þátt að þessu sinni eru Ísland, Andorra, Færeyjar, Skotland, Írland, Norður-Írland, Litháen og Gíbraltar.

Volleyball.is óskar drengjunum góðs gengis á mótinu.