Hörkuleikur gegn heimakonum

Mynd: CEV

Ísland lék annan leik sinn á EM kvenna í flokki U18 í dag. Liðið mætti heimakonum í Lettlandi í hörkuleik.

Ísland hóf keppni í gær þegar liðið mætti afar sterku liði Ítalíu. Sá leikur tapaðist 0-3 en í dag var komið að Lettlandi og var leikur dagsins jafn og skemmtilegur. Þar sem að Lettland er heimalið í keppninni var mikið um að vera í keppnishöllinni og sérstaklega góð stemning á leiknum. Ísland byrjaði mjög vel og leiddi framan af fyrstu hrinu. Um miðja hrinuna komust heimakonur á gott skrið og tóku fram úr. Íslensku stelpurnar náðu ekki að saxa á forskotið og Lettland náði 1-0 forystu.

Önnur hrinan var einnig jöfn framan af en Lettland hafði nauma forystu stærstan hluta hrinunnar. Aftur reyndist munurinn of mikill og Lettarnir héldu út. Þar með hafði Lettland 2-0 forystu og Ísland þurfti að setja í næsta gír. Þriðja hrinan var sveiflukennd en aftur leiddu þær lettnesku naumlega. Seinni hluti hrinunnar var góður hjá heimakonum en sterkar uppgjafir þeirra tryggðu 3-0 sigur. Anika Snædís Gautadóttir var valin leikmaður leiksins úr liði Íslands.

Ísland 0-3 Lettland (19-25, 20-25, 15-25). Þorbjörg Rún Emilsdóttir skoraði 6 stig fyrir Ísland en Inga Björg Brynjúlfsdóttir og Alexandra Björg Andradóttir skoruðu 4 stig hvor. Linda Raciņa var stigahæst hjá Lettlandi með 18 stig.

Fjörið heldur áfram á morgun en þá mætir íslenska liðið Tékklandi. Leikurinn hefst klukkan 9:30 og liðið fær svo hvíld frá keppni laugardaginn 4. júlí.