Stúlknalandslið Íslands í flokki U18 heldur á lokamót EM í vikunni en liðið tryggði sér sæti þar fyrr á árinu. Mótið fer fram í Litháen og Lettlandi en riðill Íslands er í Riga, Lettlandi.
Hópurinn heldur út aðfaranótt þriðjudags 30. júní og er fyrsti keppnisdagur miðvikudagur 1. júlí. Ísland mætir þá stórliði Ítalíu og byrjar mótið því á afar erfiðum leik. Ítalía vann til bronsverðlauna á EM 2024 í þessum aldursflokki enda sannkölluð stórþjóð í blakinu.

Í undirbúningi liðsins lék stúlknaliðið meðal annars æfingaleik gegn A-landsliði Íslands sem lauk nýverið keppni í European League. Íslensku stelpurnar mega hins vegar búast við mjög krefjandi en skemmtilegum leikjum gegn sterkustu liðum Evrópu. Leikið er í tveimur 8 liða riðlum þar sem allir mæta öllum. Ísland fær því að minnsta kosti 7 leiki í keppninni.
Eins og leikjafjöldinn gefur til kynna verður leikjaplanið afar þétt en liðið á frídaga 4. júlí og 7. júlí. Leiki Íslands má sjá hér (íslenskir tímar):
Miðvikudagur 1. júlí: Ítalía – Ísland 9:30
Fimmtudagur 2. júlí: Lettland – Ísland 17:00
Föstudagur 3. júlí: Tékkland – Ísland 9:30
Sunnudagur 5. júlí: Spánn – Ísland 12:00
Mánudagur 6. júlí: Belgía – Ísland 14:30
Miðvikudagur 8. júlí: Tyrkland – Ísland 14:30
Fimmtudagur 9. júlí: Pólland – Ísland 12:00
Thelma Dögg Grétarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir þjálfa liðið en Emil Gunnarsson er þeim til aðstoðar. Brynjar Óli Kristjánsson fer með sem sjúkraþjálfari liðsins og Helga Björg Pálmadóttir er liðsstjóri.