Kvennalandsliðið mætti Lettlandi í seinni leik helgarinnar en í gær tapaði liðið gegn Slóveníu. Leikurinn í dag gekk mun betur en Lettland var þó skrefi á undan stærstan hluta leiksins.
Íslensku stelpurnar voru staðráðnar að sýna betri leik en gegn gríðarsterku Slóvenum og byrjuðu leik dagsins nokkuð vel. Jafnt var framan af fyrstu hrinu en um hana miðja seig Lettland fram úr. Þær lettnesku unnu hrinuna 17-25 eftir nokkuð þægilegan lokakafla. Önnur hrinan var enn betri og munaði litlu sem engu á liðunum. Enn var það lokakaflinn sem reyndist íslensku stelpunum erfiður og Lettland vann 21-25 eftir afar góðan lokasprett.
Ísland var því með bakið upp við vegg fyrir þriðju hrinuna og byrjaði vel. Dæmið snerist þó fljótt við og erfiðar uppgjafir þeirra lettnesku gerðu íslensku stelpunum erfitt fyrir. Lettland vann að lokum 18-25 og kláraði leikinn 0-3.
Ísland 0-3 Lettland (17-25, 21-25, 18-25). Elísabet Einarsdóttir skoraði 6 stig fyrir Ísland en Lejla Sara Hadziredzepovic og Arna Sólrún Heimisdóttir bættu við 5 stigum hvor. Marta Levinska var stigahæst hjá Lettlandi með 13 stig.
Ísland tapaði því báðum leikjum helgarinnar en gerðu þó vel í dag gegn Lettlandi. Næstu helgi spilar liðið í Digranesi en þá koma Finnland og Spánn í heimsókn. Leikir Íslands fara fram föstudag 19. júní og sunnudag 21. júní.