Kvennalandsliðið mætti Slóveníu í dag í fyrri leik helgarinnar. Slóvenar voru á heimavelli og mættu til leiks með afar sterkt lið.
Slóvenía er eitt allra sterkasta lið European League og þær sýndu allar sínar bestu hliðar í upphafi leiks í dag. Slóvenska liðið náði þægilegu forskoti snemma í fyrstu hrinu en Ísland átti í vandræðum með sterkar uppgjafir og hávörn þeirra. Slóvenía vann fyrstu tvær hrinur leiksins sannfærandi en báðum hrinum lauk 25-9 fyrir heimaliðið.
Þriðja hrina leiksins fór betur af stað og var jafnræði með liðunum framan af. Slóvenía seig hægt og rólega fram úr en íslensku stelpurnar héldu þó nokkurn veginn í við þær. Slóvenía vann hrinuna engu að síður 25-16 og leikinn 3-0.
Ísland 0-3 Slóvenía (9-25, 9-25, 16-25). Lejla Sara Hadziredzepovic var stigahæst hjá Íslandi með 5 stig en Elísabet Einarsdóttir, Sara Ósk Stefánsdóttir og Arna Sólrún Heimisdóttir skoruðu 3 stig hver. Fatoumatta Sillah skoraði 16 stig fyrir Slóveníu.
Á morgun leika íslensku stelpurnar seinni leik sinn þessa helgina þegar þær mæta Lettlandi. Þær lettnesku eru mun nær Íslandi á styrkleikalista FIVB og verður áhugavert að sjá hvað íslenska liðið gerir gegn þeim.