Danir of sterkir fyrir íslensku strákana

Mynd: CEV

Íslensku strákarnir mættu Danmörku í dag þegar liðið lék seinni leik sinn þessa helgina. Danir léku á heimavelli í Odense og var afar líflegt í keppnishöllinni.

European League hélt áfram í dag en Ísland mætti Portúgal í gær í kaflaskiptum leik sem Portúgal vann 0-3. Danmörk vann 3-1 sigur gegn Portúgal á föstudagskvöld og því ljóst að leikur dagsins yrði líklega afar erfiður. Danska liðið er afar sterkt og með fjölmarga öfluga leikmenn.

Danir léku vel í dag og voru allar hrinur leiksins afar áþekkar. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en hægt og rólega sigu heimamenn fram úr. Um miðja hrinu var forskotið orðið nokkuð þægilegt og íslensku strákarnir náðu ekki að vinna það upp. Danmörk vann allar þrjár hrinurnar nokkuð örugglega og leikinn 3-0. Danir eru því með fullt hús stiga en Ísland bíður enn eftir sínu fyrsta stigi í European League.

Ísland 0-3 Danmörk (16-25, 12-25, 14-25). Hafsteinn Valdimarsson skoraði 6 stig fyrir Ísland en Hafsteinn Már Sigurðsson og Þórarinn Örn Jónsson bættu við 5 stigum hvor. Oskar Madsen skoraði 12 stig fyrir Danmörku.

Íslenska liðið heldur heim á mánudagsmorgun en heldur svo aftur út til Grikklands á fimmtudag. Þar mætir liðið heimamönnum í gríska liðinu en einnig Norður-Makedóníu. Leikið verður föstudag og laugardag áður en íslensku strákarnir halda aftur heim fyrir lokaumferðina í keppninni.