Karlalandslið Íslands hóf keppni í European League í dag þegar liðið mætti Portúgal. Danmörk leikur einnig í riðli með liðunum tveimur en leikið er í Odense, Danmörku.
European League hófst í gær, föstudag, í bæði karla- og kvennaflokki. Leikið er yfir helgar og leika þrjú lið saman í riðli hverju sinni. Í þetta skiptið eru það Ísland, Danmörk og Portúgal sem mætast innbyrðis en bæði Danir og Portúgalir hafa átt afar öflug lið á síðustu misserum.
Leikurinn byrjaði nokkuð vel hjá íslensku strákunum sem héldu vel í við sterkt lið Portúgal. Þeir portúgölsku sigu fram úr í seinni hluta fyrstu hrinu og unnu hana. Önnur hrina byrjaði erfiðlega en í þetta skiptið var seinni hluti hrinunnar góður hjá Íslandi. Það dugði ekki til og Portúgal setti svo í annan gír í þriðju hrinu. Hana unnu þeir nokkuð auðveldlega og leikinn 0-3.
Á morgun, sunnudag, mætir Ísland heimamönnum í danska liðinu en þeir unnu sterkan sigur á Portúgal á föstudagskvöld. Þeir hafa leikið afar vel að undanförnu og verður gaman að sjá íslensku strákana máta sig við Dani. Leikur Íslands og Danmerkur hefst klukkan 14:00 á íslenskum tíma.
Ísland 0-3 Portúgal (19-25, 18-25, 13-25). Hreinn Kári Erluson skoraði 5 stig fyrir Ísland en stigaskorið dreifðist töluvert í leiknum. Andre Pereira skoraði 16 stig fyrir Portúgal og var stigahæstur á vellinum.