Middelfart VK í 2. sæti eftir úrslitaeinvígi gegn Gentofte

Middelfart VK, þar sem Hreinn Kári leikur, mætti Gentofte Volleyball í úrslitum um danska meistaratitilinn.

Fyrsti leikur einvígisins fór fram þann 10. apríl á heimavelli Middelfart þar sem Gentofte höfðu betur og unnu 1-3 (27-25, 25-27, 29-31, 20-25).

Annar leikurinn var leikinn á heimavelli Gentofte þann 14. apríl þar sem Middelfart svaraði fyrir sig og jafnaði einvígið í 1-1 með 2-3 sigri í æsispennandi leik (22-25, 25-19, 28-26, 16-25, 12-15).

Þriðji leikurinn fór fram þann 19. apríl þar sem Gentofte reyndist sterkari og vann sannfærandi 3-0 sigur (18-25, 20-25, 22-25).

Fjórði leikurinn var leikinn á heimavelli Gentofte þann 24. apríl þar sem liðið leiddi 2-1 í einvíginu og gat tryggt sér titilinn á heimavelli. Gentofte nýtti það tækifæri og sigraði 3-1 (23-25, 25-15, 25-20, 25-17).

Gentofte Volleyball tryggði sér þar með danska meistaratitilinn tímabilið 2025-26.

Middelfart VK endar tímabilið í öðru sæti eftir sterkt tímabil en liðið hafnaði efst í deildarkeppninni og í fjórða sæti í bikarkeppninni.