Odense Volleyball, þar sem Galdur Máni og Máni Matthíasson leika, kepptu um þriðja sætið gegn Ikast KFUM í úrslitakeppni dönsku deildarinnar. Einvígið var leikið best af þremur leikjum og dugðu því tveir sigrar til að tryggja bronsið.
Fyrri leikurinn fór fram þann 10. apríl á heimavelli Odense þar sem Ikast höfðu betur og sigruðu 1-3 (25-17, 21-25, 23-25, 20-25).
Seinni leikurinn var leikinn á heimavelli Ikast þann 13. apríl þar sem Odense voru með bakið upp við vegg og þurftu sigur til að knýja fram oddaleik. Ikast reyndust hins vegar sterkari og unnu sannfærandi 3-0 (25-15, 25-21, 25-21).
Með sigrinum tryggði Ikast sér þriðja sætið í úrslitakeppninni eftir sterkt tímabil, en liðið endaði í sjöunda sæti í deildarkeppninni. Þeir bættu þó verulega í og náðu að tryggja sér brons bæði í bikarkeppni og úrslitakeppni.
Odense Volleyball endar þar með tímabilið í fjórða sæti.