KA einum sigri frá titlinum

Mynd: Sigga Þrúða

Úrslitakeppni karla hélt áfram í dag þegar KA og Þróttur Reykjavík mættust í þriðja leik sínum. Þróttur jafnaði einvígið með sigri á heimavelli en leikið var í KA-heimilinu í dag.

Þróttarar byrjuðu betur í dag og leiddu stærstan hluta fyrstu hrinunnar. Þeir náðu þó ekki að halda út alla hrinuna og KA seig fram úr undir lokin. KA vann hrinuna 25-21 og voru einnig sterkari aðilinn í annarri hrinu. Hávörnin hjá KA var sterk og Þróttarar réðu illa við hana. KA vann aðra hrinuna 25-22 og héldu áfram að þjarma að gestunum.

Í þriðju hrinunni voru heimamenn fljótir að ná sannfærandi forystu og hrönnuðust mistökin upp hjá gestaliðinu. KA var á góðu róli og virtust Þróttarar ekki ráða við þá í dag. KA vann auðveldan sigur í þriðju hrinunni, 25-16, og vann leikinn þar með 3-0. KA hefur því tekið forystuna í einvíginu og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðin mætast á sunnudag. Þá verður leikið á heimavelli Þróttara í Laugardalshöll.

Gísli Marteinn Baldvinsson var stigahæstur hjá KA með 14 stig en Miguel Mateo Castrillo bætti við 13 stigum. Kacper Kedra var atkvæðamestur hjá Þrótti Reykjavík með 13 stig.