HK stúlkur Íslandsmeistarar árið 2026

Mynd: Þorsteinn Gunnar Guðnason

HK tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki eftir ævintýralega spennu í Digranesi.

HK tók á móti KA í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi kvenna. Ljóst var að Íslandsmeistaratitillinn færi á loft með sigri HK en KA mættu sterkar til leiks. Eftir góða byrjun KA tók HK yfir um miðja fyrstu hrinu og virtist ætla að sigla sigri heim í hrinunni. KA átti hins vegar síðasta orðið og vann 22-25 eftir að HK hafði leitt 20-15. Eftir jafnræði framan af annarri hrinu var það KA sem leiddi um miðja hrinu en þá áttu heimakonur góða rispu. Aftur gerði KA vel undir lokin og kreisti fram 26-28 sigur.

KA leiddi leikinn þar með 0-2 og HK í nokkrum vandræðum. Mikil breyting varð á gengi liðanna en HK leiddi 10-2 í þriðju hrinu. Sú forysta varð fljótt að engu en eftir rosaleg lokastig vann HK 25-22 og hélt lífi í leiknum. Aftur voru yfirburðir HK miklir í upphafi fjórðu hrinu en nú varð munurinn mestur 12 stig í stöðunni 13-1. Eftirleikurinn var aðeins formsatriði og tryggði HK sér oddahrinu með 25-13 sigri.

HK var því aðeins 15 stigum frá Íslandsmeistaratitlinum. Leikurinn spilaðist í raun eins og annar leikur liðanna þar sem að KA náði 2-0 forystu en HK knúði fram oddahrinu. Hrinan var hnífjöfn þangað til liðin skiptu um vallarhelming en þá tók HK völdin. HK vann hrinuna 15-9 eftir frábæran lokasprett og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn 2026. Liðið vann því þrefalt í ár en HK er einnig deildar- og bikarmeistari 2026.

Stigahæst í liði HK var Elísabet Einarsdóttir með 21 stig en Helena Einarsdóttir skoraði 17 stig. Lucia Martin Carrasco var stigahæst hjá KA með 26 stig en Julia Bonet Carreras bætti við 20 stigum.

Savannah Dean Marshall var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar en hún stýrði móttöku og varnarleik HK liðsins eins og herforingi.