Endurkomusigur hjá HK-ingum

Mynd: Tripp Menhall

KA og HK mættust í dag í öðrum leik úrslitaeinvígis kvenna. HK leiddi einvígið 1-0 eftir að hafa unnið hnífjafnan fyrsta leik liðanna.

Öllum hrinum fyrsta leiks liðanna lauk með minnsta mun svo að þrátt fyrir að lokatölur hafi verið 3-1 gat leikurinn vart verið jafnari. KA byrjaði hins vegar mjög vel í dag og leiddi alla fyrstu hrinuna. Paula Del Olmo kom inn fyrir KA í fyrstu hrinunni en hún er nýbökuð móðir og aðeins um 3 vikur síðan barnið kom í heiminn. Hún hjálpaði liðinu að vinna sannfærandi 25-17 sigur.

Liðin skiptust á að hafa forystuna í annarri hrinu en eftir miðbik hennar leiddi HK 15-19. Þá fór allt á hliðina hjá HK og KA komst á frábært skrið. KA endaði hrinuna á 10-2 kafla og vann 25-21. Þar með hafði KA 2-0 forystu í leiknum og nálægt því að jafna einvígið. Svipaða sögu var að segja af þriðju hrinunni en í þetta skiptið hélt HK út og vann nokkuð öruggan 20-25 sigur.

KA var eina liðið á vellinum í upphafi fjórðu hrinu og leiddu norðankonur 7-1. Sú forysta hvarf strax því HK jafnaði 7-7 og í kjölfarið sveiflaðist forystan liðanna á milli. HK gerði vel á lokakaflanum og knúði fram oddahrinu með 22-25 sigri. Þar var HK sterkari aðilinn og vann hana 10-15. Þar með tryggði HK 2-3 endurkomusigur eftir að KA hafði leitt 2-0.

Lucia Martin Carrasco skoraði 26 stig fyrir KA en Julia Bonet Carreras bætti við 24 stigum. Hjá HK var Helena Einarsdóttir stigahæst með 17 stig og Elísabet Einarsdóttir skoraði 12 stig.

Þriðji leikur liðanna fer fram miðvikudaginn 22. apríl en leikið verður í Digranesi. HK getur þá tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri en verði fjórði leikur í einvíginu fer hann fram í KA-heimilinu laugardaginn 25. apríl.