HK leiðir eftir hörkuleik

Mynd: Tripp Menhall (Instagram @tripp.flix)

HK og KA mættust í kvöld í fyrsta leik úrslitaeinvígis kvenna um Íslandsmeistaratitilinn. Deildarmeistarar HK byrjuðu á heimavelli og því var leikið í Digranesi.

Rimmur þessara liða hafa verið æsispennandi í vetur en liðin mættust síðast í bikarúrslitum. Þar hafði HK betur eftir hörkuleik. Liðin mættust einnig fjórum sinnum í deildarkeppninni og hafði HK betur í öll skiptin. Þessir fimm leikir liðanna á tímabilinu voru þó allir spennandi og því von á jöfnu einvígi.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en heimakonur í HK voru skrefi á undan nánast alla hrinuna. Undir lokin átti KA flottan kafla og mætti segja að þær hafi stolið sigrinum og náð þannig 0-1 forystu í leiknum. Hrinunni lauk 23-25 og áfram var jafnt í annarri hrinu. Svipaða sögu var að segja af gangi leiksins þar sem HK leiddi naumlega. KA átti aftur frábæran lokakafla en í þetta skiptið vann HK eftir upphækkun, 29-27. Staðan var því orðin jöfn 1-1.

Þriðja hrina leiksins var sveiflukennd en eftir að HK hafði leitt framan af hrinu náði KA afgerandi forystu fyrir lokasprettinn. HK sneri dæminu við undir lokin og vann aftur með minnsta mun, 25-23. Enn var jafnt á öllum tölum í fjórðu hrinu en liðin skiptust á að hafa nauma forystu. Enn og aftur vann HK naumlega eftir hörkuspennu en fjórðu hrinu lauk 26-24. HK vann leikinn þar með 3-1 og náði 1-0 forystu í úrslitaeinvíginu. Það lið sem vinnur fyrr þrjá leiki verður Íslandsmeistari.

Elísabet Einarsdóttir var stigahæst hjá HK með 17 stig en næst kom Helena Einarsdóttir með 16 stig. Julia Bonet Carreras skoraði 26 stig fyrir KA og Lucia Martin Carrasco bætti við 21 stigi.

Næsti leikur liðanna fer fram á Akureyri laugardaginn 18. apríl. Miðað við leik kvöldsins er von á meiri spennu í KA-heimilinu.