KA komið í úrslit eftir öruggan sigur á Akureyri

Mynd: Sigga Þrúða

Í kvöld fór fram oddaleikur KA og Aftureldingar í undanúrslitum Unbrokendeildar karla, leikurinn fór fram í KA heimilinu á Akureyri.

Báðir leikir liðanna enduðu í oddahrinu og var það gestaliðið sem hafði betur í báðum leikjunum. KA byrjaði leikinn í dag betur og virtust hungraðri en Afturelding í upphafi fyrstu hrinu. KA leiddi megnið af hrinunni en Afturelding sótti þó í sig veðrið þegar leið á hrinuna. Það reyndist þó of seint og hafði KA betur 25-22.

KA hélt uppteknum hætti í annarri hrinu og leiddu hana að megninu til með miklum yfirburðum. Varnarleikur Aftureldingar var ekki nægilega góður og áttu KA menn oftar en ekki full auðvelt með að koma boltanum í gólf. KA fór með sigur 25-18 og nokkuð ljóst að Afturelding þyrfti að rífa sig í gang ætluðu þeir sér ekki að fara í sumarfrí.

KA átti ekki í miklum erfiðleikum í þriðju hrinu og gáfu fá færi á sér. Mikill stöðuleiki í KA liðinu á meðan orkulitlir leikmenn Afturelding átti engar lausnir. KA fór með sigur 25-18 og vinna því leikinn 3-0.

Öruggur og mjög sannfærandi sigur KA sem eru komnir í úrslita einvígið um íslandsmeistaratitilinn en þar mæta þeir Þrótti Reykjavík sem lagði Hamar í tveimur leikjum. Fyrsti leikur liðanna fer fram 14.apríl á Akureyri. Vinna þarf 3 leiki til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn.