Bæði einvígin á leið í oddaleik

Mynd: Tripp Menhall (Instagram @tripp.flix)

Undanúrslit kvenna héldu áfram með tveimur hörkuleikjum. KA og Afturelding höfðu forystu eftir sigra í fyrstu leikjunum en Völsungur og HK voru með bakið upp við vegg.

Að Varmá mættust Afturelding og HK en Mosfellingar unnu fyrsta leik liðanna nokkuð óvænt. HK tryggði sér deildarmeistaratitilinn í mars en Afturelding var í 4. sæti Unbroken deildarinnar. Afturelding hefur hins vegar vaxið eftir því sem leið á tímabilið og því ljóst að einvígið yrði jafnt. Fyrsta hrina leiksins í dag var sveiflukennd og HK virtist ætla að stinga af um miðja hrinuna. Afturelding kom hins vegar til baka en að lokum vann HK naumlega og náði 0-1 forystu.

Önnur hrinan varð aldrei spennandi en þar valtaði HK yfir heimakonur og vann 8-25. Gestirnir úr Kópavogi héldu áfram að spila vel í þriðju hrinunni á meðan að Aftureldingu gekk illa að finna taktinn. Eftir að nokkuð jafnræði var með liðunum framan af hrinu vann HK sannfærandi sigur og tryggði sér því 0-3 sigur í leiknum. Þar með fer einvígið í oddaleik en hann fer fram í Digranesi fimmtudaginn 9. apríl.

Afturelding 0-3 HK (22-25, 8-25, 18-25)

Fyrir norðan mættust Völsungur og KA þar sem KA leiddi einvígið 1-0. Fyrsta leik liðanna lauk með 3-1 sigri KA sem gat þar með tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í dag. Fyrsta hrina var afar spennandi en það var KA sem vann með minnsta mun. Liðin skiptust á að hafa nauma forystu í annarri hrinu en undir lokin sigu Völsungar fram úr og jöfnuðu leikinn 1-1. Enn var jafnt með liðunum í þriðju hrinu og það var ekki fyrr en undir lok hennar sem Völsungur skoraði 4 stig í röð og tryggði sér svo sigur eftir æsispennandi lokakafla.

Völsungur leiddi þar með 2-1 og var í dauðafæri á að tryggja sér oddaleik. Liðin skiptust á að hafa forystuna en Völsungur reyndist sterkari aðilinn og tryggði sér sigur eftir mikla spennu. Völsungur vann leikinn því 3-1 og tryggja sér oddaleik líkt og HK. Hann fer einnig fram fimmtudag 9. apríl, líkt og leikur HK og Aftureldingar.

Völsungur 3-1 KA (23-25, 25-21, 25-23, 25-20)