Middelfart VK, þar sem Hreinn Kári leikur, mætti Ikast KFUM í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. Ikast hafði átt erfitt tímabil og endaði í 7. sæti deildarinnar, en liðið náði sér vel á strik á lokasprettinum og sló út ASV Elite, sem hafði endað í 2. sæti, í átta liða úrslitum.
Fyrsti leikur einvígisins fór fram 23. mars, þar sem Middelfart vann öruggan 3-0 sigur (25-22, 25-19, 25-22).
Annar leikurinn var leikinn 26. mars á heimavelli Ikast. Þar kom óvæntur sigur hjá heimaliðinu, sem vann 3-1 (25-21, 25-23, 20-25, 25-21) og jafnaði einvígið í 1-1.
Þriðji leikurinn fór fram 29. mars á heimavelli Middelfart, þar sem liðið svaraði vel fyrir sig og vann sannfærandi 3-0 (25-22, 25-14, 25-18).
Fjórði leikurinn var leikinn 1. apríl og þar tryggði Middelfart sér sæti í úrslitum með 3-0 sigri eftir þrjár æsispennandi hrinur (24-26, 23-25, 22-25).
Middelfart VK hefur þar með tryggt sér sæti í úrslitum um danska meistaratitilinn þar sem að þeir munu mæta Gentofte. Ekki hefur enn verið tilkynnt um dagsetningar leikjanna, en hægt verður að fylgjast með því þegar nær dregur.