Holte IF tryggir sér sæti í úrslitum

Síðastliðna helgi, þann 28. mars, mættust Holte IF þar sem hún Sara Ósk leikur og Gentofte í þriðja undanúrslitaleik um danska meistaratitilinn. Þar fór svo að Holte tryggði sér sigur og sæti í úrslitum.

Fyrsti leikurinn fór fram sunnudaginn 22. mars á heimavelli Holte, þar sem liðið vann sannfærandi 3-0 (25-12, 25-13, 25-13).

Annar leikurinn var leikinn fimmtudaginn 26. mars á heimavelli Gentofte, þar sem Holte hélt áfram á sömu braut og sigraði aftur 3-0 (20-25, 13-25, 20-25).

Þriðji leikurinn fór fram laugardaginn 28. mars á heimavelli Holte. Þar þurfti Gentofte á sigri að halda til að knýja fram fjórða leik. Gentofte veittu Holte harða keppni og þurfti Holte að gefa í, en það dugði þó ekki til þar sem Holte vann leikinn 3-1 (25-18, 22-25, 25-20, 25-22) og tryggði sér þar með sæti í úrslitum.

Í úrslitum mætir Holte liði ASV Elite, sem sló Brøndby út í undanúrslitum. Þetta er fjórða tímabilið í röð sem þessi tvö lið mætast í úrslitum um danska meistaratitilinn.

Þar sem Holte endaði í efsta sæti deildarinnar fær liðið heimavallarrétt í fyrstu viðureign. Leikirnir fara fram á eftirfarandi dagsetningum (danskur tími):

12. apríl kl. 14:00

15. apríl kl. 20:00

18. apríl kl. 15:30

25. apríl kl. 14:00 (ef þarf)

2. maí kl. 15:30 (ef þarf)