Meistaradeild karla er í fullum gangi en í gær lauk 8-liða úrslitum keppninnar. Seinni leikir umferðarinnar fóru fram í vikunni og fékk stórlið Lube frá Ítalíu skell gegn Zawiercie frá Póllandi.
Leikið var heima og að heiman í 8-liða úrslitunum. Samanlögð úrslit tveggja leikja réðu úrslitum en ekki var þörf á gullhrinu í þetta skiptið. Fjögur pólsk lið voru í 8-liða úrslitum keppninnar að þessu sinni en einnig voru tvö ítölsk lið í eldlínunni.
PGE Projekt Warszawa 4-2 Bogdanka LUK Lublin
Tvö pólsk lið mættust í fyrstu viðureign 8-liða úrslitanna en búist var við afar jöfnu einvígi. Warszawa vann fyrri leik liðanna 3-1 á sínum heimavelli og liðið tryggði sér farseðil í undanúrslit með því að komast í oddahrinu þegar leikið var á heimavelli Lublin. Liðið náði þannig í stigið sem tryggði þeim sigur í einvíginu. Þar með vann Warszawa einvígið 4-2 í stigum talið. Bartosz Bednorz skoraði 32 stig fyrir Warszawa í einvíginu en Hilir Henno skoraði 25 stig fyrir Lublin í leikjunum tveimur.
Guaguas Las Palmas 1-5 Sir Sicoma Monini Perugia
Guaguas og Perugia mættust í riðlakeppninni en þar vann Perugia tvívegis í jöfnum leikjum. Fyrri leikur liðanna fór fram á Kanaríeyjum og þar vann Perugia nauman 3-2 sigur. Þeir reyndust þó sterkari aðilinn á heimavelli og tryggðu sér sigur í einvíginu með 3-0 sigri. Perugia eru ríkjandi meistarar í Meistaradeild Evrópu og stefna ótrauðir á að verja titilinn. Francisco Wallyson Bezerra Souza skoraði 29 stig fyrir Guaguas í tveimur leikjum en Wassim Ben Tara skoraði 41 stig fyrir Perugia.
Cucine Lube Civitanova 0-6 Aluron CMC Warta Zawiercie
Lube frá Civitanova hefur síðustu ár átt góðu gengi að fagna í Meistaradeildinni en í 8-liða úrslitunum mætti liðið Zawiercie, nýkrýndum deildarmeisturum frá Póllandi. Pólska liðið vann óvæntan 0-3 sigur í fyrri leik liðanna sem fram fór í Civitanova. Zawiercie gerði svo út um dæmið með öðrum sterkum sigri á heimavelli sínum. Aleksandar Nikolov skoraði 25 stig fyrir Lube en Bartosz Kwolek og Bartlomiej Boladz skoruðu 18 stig hvor fyrir Zawiercie.
Asseco Resovia 0-6 Ziraat Bankkart Ankara
Einvígi Resovia og Ankara var afar jafnt en þrátt fyrir það vann Ankara báða leiki liðanna 3-0. Ójafnasta hrina einvígisins var 25-19 sigur Ankara í 2. hrinu seinni leiks liðanna, það gefur því auga leið að um hörkuleiki var að ræða. Engu að síður spilaði tyrkneska liðið afar vel og tryggði sér síðasta sætið í undanúrslitunum. Karol Butryn skoraði 27 stig fyrir Resovia en Nimir Abdel-Aziz skoraði 23 stig fyrir Ankara.

Final Four – Turin
Næst á dagskrá er hið fræga Final Four þar sem leikið verður til undanúrslita og úrslita sömu helgina. Leikið verður í Turin á Ítalíu dagana 16. og 17. maí. Undanúrslit fara fram á laugardegi en leikið verður um brons og til úrslita á sunnudag.
Laugardagur 16. maí 15:00: PGE Projekt Warszawa – Sir Sicoma Monini Perugia
Laugardagur 16. maí 18:30: Aluron CMC Warta Zawiercie – Ziraat Bankkart Ankara
Sunnudagur 17. maí 15:00: Bronsleikur
Sunnudagur 17. maí 18:30: Úrslitaleikur