Draumalið Unbroken deildanna

Blaksamband Íslands birti í gær draumalið Unbroken deilda karla og kvenna en deildarkeppni lauk nýverið. Fleiri nafnbótum var úthlutað en þar á meðal voru bestu og efnilegustu leikmenn deildanna. Allar útnefningar má finna á samfélagsmiðlum BLÍ.

Draumalið karla er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Kantar: Denis Pavlovs (Hamar) og Raul Garcia Asensio (Þróttur Fjarðabyggð)

Miðjur: Hafsteinn Valdimarsson (Hamar) og Kristján Valdimarsson (Hamar)

Díó: Hafsteinn Már Sigurðsson (Afturelding)

Uppspilari: Zdravko Kamenov (KA)

Frelsingi: Mateusz Jelenewski (KA)

Þjálfari: Miguel Mateo Castrillo (KA)

Draumalið kvenna er skipað eftirfarandi leikmönnum:

Kantar: Julia Bonet Carreras (KA) og Taylor Nicole Horsfall (Völsungur)

Miðjur: Tamara Beerová (Völsungur) og Arna Sólrún Heimisdóttir (HK)

Díó: Lucia Martin Carrasco (KA)

Uppspilari: Matthildur Einarsdóttir (HK)

Frelsingi: Savannah Dean Marshall (HK)

Þjálfari: Massimo Pistoia (HK)

Bestu og efnilegustu leikmenn Unbroken deildanna

Unbroken deild kvenna

Besti íslenski leikmaður: Matthildur Einarsdóttir (HK)

Besti erlendi leikmaður: Julia Bonet Carreras (KA)

Efnilegust: Inga Björg Brynjúlfsdóttir (Völsungur)

Unbroken deild karla

Besti íslenski leikmaður: Hafsteinn Már Sigurðsson (Afturelding)

Besti erlendi leikmaður: Denis Pavlovs (Hamar)

Efnilegastur: Ágúst Leó Sigurfinnsson (KA)

Stigahæstu leikmenn Unbroken deildanna

Stigahæst í sókn og samtals: Juan Manuel Balnquer (Völsungur) og Julia Bonet Carreras (KA)

Stigahæst í hávörn: Kristján Valdimarsson (Hamar) og Valdís Unnur Einarsdóttir (Afturelding)

Stigahæst í uppgjöf: Hubert Lasecki (Afturelding) og Taylor Nicole Horsfall (Völsungur)

Dómari ársins var einnig valinn og hlaut Ólafur Jóhann Júlíusson þann titil.