Undanúrslit Kjörísbikars karla fóru fram í dag þegar Afturelding og Hamar tryggðu sér sæti í úrslitum.
Völsungur/Efling – Afturelding
Völsungur/Efling og Afturelding mættust í fyrri leik dagsins þar sem Mosfellingar þóttu nokkuð líklegri fyrir leik. Það var þó ekki að sjá mikinn getumun á liðunum í fyrstu hrinu því Húsvíkingar byrjuðu betur. Uppgjafir og móttaka réðu nokkurn veginn úrslitum í hrinunni þar sem Völsungur var skrefi á undan. Völsungur vann hrinuna 25-23 og náði forystunni nokkuð óvænt. Afturelding tók öll völd í annarri hrinu og vann öruggan 18-25 sigur.
Þriðja hrina leiksins var nokkuð jöfn en eftir miðbik hrinunnar komst Afturelding á gott skrið. Tomek Leik og Hafsteinn Már Sigurðsson fóru fyrir Aftureldingu þegar kom að sóknarleiknum en móttakan var einnig mun stöðugri en í upphafi leiks. Aftur unnu Mosfellingar nokkuð sannfærandi 19-25 sigur og leiddu nú 1-2.
Jafnt var á öllum tölum fyrri hluta fjórðu hrinu en baráttuglaðir Völsungar voru skrefinu á undan. Afturelding virtist ætla að taka yfir um miðja hrinu en Völsungur spilaði skynsamlega og hélt dampi. Afturelding gerði töluvert af mistökum og Völsungur knúði fram oddahrinu með 25-21 sigri. Oddahrinan var heldur ójöfn og sigldi Afturelding þægilegum sigri heim. Mosfellingar unnu leikinn þar með og hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik Kjörísbikarsins.
Hamar – Þróttur Fjarðabyggð
Deildarmeistarar Hamars mættu Þrótti Fjarðabyggð í seinni leik dagsins en Hamar hafði unnið allar viðureignir liðanna á þessu tímabili. Þróttur varð fyrir áfalli snemma leiks þegar þeirra stigahæsti maður á tímabilinu, Raul Garcia Asensio, fór af velli eftir aðeins örfá stig. Norðfirðingar létu það ekki á sig fá og léku afar vel. Eftir æsispennandi lokakafla skoraði Hamar síðustu tvö stigin og vann 25-23.
Enn var jafnt á öllum tölum í annarri hrinu en öðru sinni meiddist díó Þróttara. Arnar Jacobsen sneri sig á ökkla í baráttu við netið en líkt og í fyrstu hrinu var liðsframmistaða Þróttara öflug. Hamar gerði töluvert af mistökum sem er þeim ólíkt og Þróttur nýtti sér það vel. Þróttarar lentu 26-25 undir en eftir ótrúleg lokastig unnu þeir 26-28 sigur. Leikurinn var því orðinn jafn og farið að hitna í kolunum.
Þriðja hrinan náði ekki sömu hæðum og fyrstu tvær hrinurnar en Hamar leiddi allt frá upphafi. Þeir kláruðu hrinuna 25-16 og virtust komnir með góð tök á leiknum. Þeir héldu pressunni á Þrótturum í upphafi fjórðu hrinu en náðu ekki að slíta sig frá þeim. Hamar hélt forystunni sem sveiflaðist þó til. Að lokum höfðu Hamarsmenn 25-21 sigur sem tryggði 3-1 sigur í leiknum og farmiða í úrslitaleikinn. Þar mæta þeir því Aftureldingu í úrslitaleik Kjörísbikars karla 2026
Úrslitaleikurinn hefst klukkan 15:30 á morgun og verður í beinni útsendingu á RÚV. Blakarar sem og aðrir áhugamenn eru hvattir til að fjölmenna í Digranes en úrslitaleikur kvenna hefst 13:00.
Úrslit dagsins – Undanúrslit Kjörísbikars karla
Völsungur/Efling 2-3 Afturelding (25-23, 18-25, 19-25, 25-21, 10-15). Juan Manuel Balnquer Sebastian skoraði 18 stig fyrir Völsung og Þórarinn Örn Jónsson kom næstur með 17 stig. Tomek Leik og Hafsteinn Már Sigurðsson skoruðu 22 stig hvor fyrir Aftureldingu.
Hamar 3-1 Þróttur Fjarðabyggð (25-23, 26-28, 25-16, 25-21). Andrejs Iljins Koselev skoraði 24 stig fyrir Hamar og Denis Pavlovs bætti við 21 stigi. Carlos Jiménez Gallego var stigahæstur Þróttara með 17 stig og Andri Snær Sigurjónsson skoraði 16 stig.