Kjörísbikarinn – Upphitun: Hamar – Þróttur Fjarðabyggð undanúrslit kk

Mynd: Mummi Lú

Undanúrslit í Kjörísbikar karla fara fram í dag en seinni leikur dagsins er viðureign Hamars og Þróttar Fjarðabyggðar og hefst leikurinn kl 19:30 en leikið er að venju í Digranesi.

Við hitum upp með smá samantekt um liðin.

Hamar

Hamarsmenn urðu deildarmeistarar í Unbroken deild karla með 53 stig af 63 mögulegum. Þar náði liðið í 18 sigra og tapaði aðeins þremur leikjum.

Stigahæsti leikmaður Hamars í deildarkeppninni var Denis Pavlovs með 378 stig en hann var stigahæsti leikmaður deildarinnar.

Gengi Hamars í bikarkeppninni:

Hamar hefur orðið bikarmeistari fjórum sinnum en liðið vann bikarkeppnina fjögur ár í röð (2021-2024).

Leið Hamars í undanúrslit:

Hamar mætti KA í stórleik 8-liða úrslitanna en KA eru ríkjandi bikarmeistarar. Hamar vann leikinn 3-0 þrátt fyrir jafnan og spennandi leik (25-21, 25-22, 25-19).


Þróttur Fjarðabyggð

Þróttur Fjarðabyggð lauk keppni í 6.sæti með 22 stig af 63 mögulegum. Þróttur F vann sex leiki á tímabilinu en tapaði 15.

Stigahæsti leikmaður Þróttar F í deildarkeppninni var Raul Garcia Asensio með 369 stig.

Gengi Þróttar F í bikarkeppninni:

Þróttur F hefur aldrei unnið bikarkeppnina í karlaflokki en komst síðast í úrslitaleikinn árið 2024.

Leið Þróttar F í undanúrslit:

Þróttur Fjarðabyggð mætti HK í 8 liða úrslitum og vann sannfærandi 3-0 sigur (25-15, 25-19, 25-17)

Innbyrðis viðureignir liðanna (síðustu 3 leikir):

  • 15.02.25 Þróttur F 0-3 Hamar (16-25, 19-25, 17-25)
  • 09.11.25 Hamar 3-1 Þróttur F (25-21, 23-25, 25-14, 25-19)
  • 08.11.25 Hamar 3-0 Þróttur F (26-24, 25-21, 26-24)