HK og KA mætast í úrslitum Kjörísbikar kvenna

Mynd: Tripp Menhall

Úrslitahelgi í Kjörísbikarsins fór af stað í dag en leikið var í undanúrslitum kvenna.

Fyrri leikur kvöldsins var viðureign HK og Aftureldingar en fyrir leik var búist við hörkuviðureign enda hafa leikir þessara liða í gegnum tíðina oftar en ekki verið gífurlega mikil spenna.

HK byrjaði leikinn í dag hinsvegar af miklum krafti og var fljótt komið með góð tök á fyrstu hrinunni. Aftureldingu gekk illa að taka á móti gífurlega öflugum uppgjöfum HK og tók Tamas Kaposi þjálfari liðsins leikhlé í stöðunni 12-7 fyrir HK. Strax eftir leikhléið komu systurnar Thelma Dögg og Daníela Grétarsdætur inná í liði Aftureldingar en þær hafa verið töluvert fjarverandi hjá Aftureldingu í vetur.

HK hélt áfram gífurlegri pressu í uppgjöfum liðsins og tók Afturelding sitt seinna leikhlé í stöðunni 16-9. HK gaf allt í botn og unnu hrinuna með miklum yfirburðum 25-14. Þorbjörg Rún Emilsdóttir kom inn með miklum krafti í liðið HK undir lok hrinunnar.

Það var nokkuð ljóst að Afturelding þyrfti að hrista af sér skjálftann eftir fyrstu hrinuna ef ekki ætti að enda illa og byrjuðu þær strax betur í annarri hrinu. HK var hinsvegar ekki lengi að ná tökum á leiknum aftur og hægt og rólega náðu þær að ýta Aftureldingu frá sér. HK hafði svo að lokum betur 25-19.

Yfirburðir HK héldu áfram í þriðju hrinu en HK var fljótt komið í 5-0. Afturelding var hinsvegar ekki búin að gefast upp og hægt og rólega náðu þær að vinna sig inní leikinn en þriðja hrina endaði með mikilli spennu. HK hafði hinsvegar að lokum betur 25-22 og því búnar að tryggja sér sæti í úrslitum Kjörísbikarsins annað árið í röð.

Stigahæst í leiknum var Helena Einarsdóttir leikmaður HK með 14 stig. Stigahæst í liði Aftureldingar var Alexia Joffrin með 11 stig.


 

Seinni leikur kvöldsins var viðureign Þróttar Reykjavíkur/BFH og KA en þar var hægt að búast við því fyrir leik að lið KA væri sigurstranglegra.

Þetta leit ekki vel út fyrir Þrótt Reykjavík/BFH í upphafi leiks en KA komst í 5-0 í upphafi fyrstu hrinu. Þrátt fyrir að hafa gefið aðeins eftir undir lok hrinu þá var KA með góð tök á leiknum frá upphafi. Fyrstu hrinu lauk með sigri KA 25-17.

Önnur hrina var æsispennandi frá upphafi til enda. Bæði lið buðu uppá langar að kröftugar skorpur og var varnarleikur liðanna frábær. Eftir æsispennandi lokakafla hafði Þróttur Reykjavík/BFH loks betur 25-23.

Þróttur Reykjavík byrjaði svo þriðju hrinu betur og komst strax í 3-0 en sóknarleikur KA var ekki nægilega góður. KA stúlkur komust hinsvegar inní leikinn og úr varð önnur æsispennandi hrina þar sem liðin sýndu frábæra takta bæði sóknar og varnarlega. KA hafði hinsvegar að lokum betur 25-21 eftir kröftuga sókn frá Juliu Bonet Carreras

Eftir tvær æsispennandi hrinur virtust orkubyrgðir Þróttar Reykjavíkur/BFH  aðeins fara minnkandi í upphafi fjórðu hrinu. Öflugar uppgjafir frá Lovísu Rut komu KA í 11-4.  KA hélt góðu forskoti út hrinuna og reyndust þær sterkari á loka kafla leiksins. Þrátt fyrir góðan kafla frá Þrótti Reykjavík/BFH þá vann KA fjórðu hrinu nokkuð örugglega 25-18

Stigahæst í leiknum var Julia Bonet Carreras leikmaður KA með 24 stig. Stigahæst í liði Þróttar Reykjavíkur/BFH var Michelle Traini með 17 stig.

Það verða því HK og KA sem mætast í úrslitaleik Kjörísbikars kvenna árið 2026 en þessi lið mættust einnig í úrslitaleik á síðasta tímabili.

Úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 14.mars kl 13:00 í Digranesi.