Kjörísbikar helgin hefst í dag, fimmtudaginn 12.mars með undanúrslitum kvenna en seinni leikur dagsins er viðureign Þróttar Reykjavíkur/BFH og KA og hefst leikurinn kl 19:30. Eins og undanfarin ár er leikið í Digranesi.
Við hitum upp með smá samantekt um liðin.
Þróttur R/BFH
Þróttur R/BFH lauk keppni í Unbroken deild kvenna í 5. sæti deildarinnar og missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Þróttur R/BFH endaði deildarkeppnina með 19 stig af 60 mögulegum og sigruðu þær 5 af 20 leikjum sínum í deildinni.
Stigahæsti leikmaður Þróttar R/BFH í deildarkeppninni var Michelle Traini með 224 stig.
Gengi Þróttar R/BFH í Bikarkeppni:
Þróttur Reykjavík hefur 6 sinnum orðið bikarmeistari (1983, 1988, 2004, 2005, 2006, 2007). Liðin leika saman í fyrsta sinn á þessu tímabili en BFH hefur aldrei orðið bikarmeistari.
Leið Þróttar R/BFH í undanúrslit:
Þróttur R/BFH vann glæsilegan sigur á Völsungi í 8-liða úrslitum en liðið vann 3-1 sigur á heimavelli. Michelle Traini átti þar stórleik og skoraði 29 stig.
KA
KA endaði í 2. sæti í Unbroken deild kvenna með 47 stig af 60 mögulegum. Liðið varð rétt á eftir HK en úrslitin réðust í lokaleik tímabilsins. KA vann 16 af 20 leikjum sínum í deildinni.
Stigahæsti leikmaður KA í deildarkeppninni var Julia Bonet Carreras með 377 stig. Hún var jafnframt langstigahæsti leikmaður deildarinnar.
Gengi KA í Bikarkeppni:
KA er ríkjandi bikarmeistari kvenna og hefur 4 sinnum orðið bikarmeistari (2019, 2022, 2023, 2025).
Leið KA í undanúrslit:
KA mætti Þrótti Fjarðabyggð í 8-liða úrslitum og vann þar sannfærandi sigur. Norðfirðingar unnu eina hrinu í leiknum en sigur KA var þó aldrei í hættu.
Innbyrðis viðureignir liðanna (síðustu 4 leikir):
- 13.2.26 Þróttur R/BFH – KA 1-3 (25-22, 15-25, 19-25, 21-25)
- 8.11.25 Þróttur R/BFH – KA 2-3 (8-25, 27-25, 25-20, 13-25, 4-15)
- 21.9.25 KA – Þróttur R/BFH 3-0 (25-14, 25-19, 25-14)
- 20.9.25 KA – Þróttur R/BFH 3-0 (25-22, 25-17, 28-26)
Volleyball.is hvetur lesendur til að skella sér í Digranesið en miðasölu má nálgast hér.