Kjörísbikar helgin hefst á morgun, fimmtudaginn 12.mars með undanúrslitum kvenna en fyrri leikur dagsins er viðureign HK og Aftureldingar og hefst leikurinn kl 17:00, eins og undanfarin ár er leikið í Digranesi.
Við hitum upp með smá samantekt um liðin.
HK
HK tryggði sér Deildarmeistaratitil í Unbroken deild kvenna um síðustu helgi eftir æsispennandi leik gegn KA. HK endaði deildarkeppnina með 52 stig af 60 mögulegum og sigruðu þær 18 af 20 leikjum sínum í deildinni.
Stigahæsti leikmaður HK í deildarkeppninni var Þórdís Guðmundsdóttir með 251 stig.
Gengi HK í Bikarkeppni:
HK hefur 6 sinnum orðið bikarmeistari (2003, 2009, 2010, 2013, 2014, 2021)
Leið HK í undanúrslit:
HK heimsótti 1.deildar lið UMFG í 8 liða úrslitum og unnu þær þann leik nokkuð örugglega 3-0 (25-16, 25-15, 25-9)
Afturelding
Afturelding endaði í 4. sæti í Unbroken deild kvenna með 28 stig af 60 mögulegum. Afturelding hafði betur í 10 af 20 leikjum sínum í deildinni.
Stigahæsti leikmaður Aftureldingar í deildarkeppninni var Sóldís Björt Leifsdóttir Blöndal með 218 stig.
Gengi Aftureldingar í Bikarkeppni:
Afturelding hefur 5 sinnum orðið bikarmeistari (2012, 2015, 2016, 2017, 2024)
Leið Aftureldingar í undanúrslit:
Afturelding fékk 1.deildar lið Ýmis í heimsókn í 8 liða úrslitum og unnu þær þann leik nokkuð örugglega 3-0 (25-13, 25-6, 25-19)
Innbyrgðis viðureignir liðanna (síðustu 4 leikir):
- 25.02.26 HK-Afturelding 0-3 (19-25, 18-25, 24-26)
- 21.01.26 Afturelding – HK 0-3 (17-25, 22-25, 11-25)
- 19.11.25 Afturelding – HK 0-3 (9-25, 14-25, 19-25)
- 14.10.25 HK – Afturelding 3-1 (25-16, 25-20, 23-25, 25-17)
Volleyball.is hvetur lesendur til að skella sér í Digranesið en miðasölu má nálgast hér.