KA hafði betur í grannaslag á Akureyri

Mynd: Sigga Þrúða

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í dag þegar norðan liðin KA og Völsungur áttust við í KA heimilinu.

Völsungur hefur um lítið að keppa, liðið búið að tryggja sig áfram í úrslitakeppnina en KA þarf hinsvegar nauðsynlega á öllum stigum að halda, ætli þær sér að eiga möguleika á að komast upp fyrir HK í lokaumferðunum tveimur sem fara fram um helgina.

KA vann fyrstu hrinuna nokkuð öruggt 25-17 en Völsungur jafnaði leikinn með sigri í annarri hrinu 25-21. Aftur snéri KA við blaðinu í þriðju hrinu en eftir kaflaskipta hrinu hafði KA betur 25-19. KA kláraði svo leikinn með sigri í fjórðu hrinu 25-23.

KA – Völsungur 3-1 (25-17, 21-25, 25-19, 25-23)

KA er þá komið í 46 stig í 2.sæti, stigi á eftir HK. Völsungur er enn í 3.sæti með 28 stig.

Þá hafa öll lið spilað 18 leiki og verða loka umferðirnar tvær spilaðar um helgina.

HK og KA mætast í Digranesi í leikjum um deildarmeistaratitilinn. Þá fer Afturelding austur í Neskaupstað og mæta þar Þrótti Fjarðarbyggð í tveimur leikjum, Aftureldingu nægir sigur í öðrum leiknum til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Þróttur Reykjavík / BFH fer norður og mætir Völsungi, Þróttur þarf að vinna báða leikina og vonast eftir óhagstæðum úrslitum hjá Aftureldingu til að eiga möguleika á 4. sætinu og síðasta sætinu í úrslitakeppninni.

Leikir í síðustu tveimur umferðunum sem spilaðar verða um næstu helgi.