Á morgun 13.desember fara fram undanúrslit á Heimsmeistaramóti félagsliða í kvennaflokki.
Ítölsku liðin Savino Del Bene Scandicci og Prosecco DOC Imoco Conegliano fóru taplaus í gegnum sína riðla og eru því komin í undanúrslit. Það eru svo brasilísku liðin Osasco São Cristóvão Saúde og Dentil Praia Clube sem fylgja þeim í undanúrslit en undanúrslitin hefjast eins og fyrr segir, á morgun 13.desember.
16:00, Savino Del Bene Scandicci (Ítalía) – Dentil Praia Clube (Brasilía)
19:30, Prosecco DOC Imoco Conegliano (Ítalía) – Osasco São Cristóvão Saúde (Brasilía)
Hin 22 ára argentíska Bianca Cugno leikmaður Osasco São Cristóvão Saúde er stigahæst á mótinu til þessa með 62 stig í þremur leikjum, þ.a. 58 stig úr sókn.
Leikina er hægt að sjá á VolleyballWorld TV