Meistaradeild karla er í fullum gangi en útsláttarkeppnin hófst á dögunum. Æsispennandi leikir fóru fram í vikunni og er meistaralið ársins 2024 nú þegar úr leik.
Eftir að riðlakeppninni lauk tók við svokallað “Playoff 6” þar sem að sex lið börðust um síðustu þrjú sætin í 8-liða úrslitum Meistaradeildar karla. Nú þegar höfðu fimm sigurlið riðlanna komist beint í 8-liða úrslitin. Liðin mættust tvívegis þar sem hvort lið fær sinn heimaleikinn. Leikin er gullhrina ef lið skipta sigrum með sér en þó gilda 3-2 leikir á annan hátt en 3-0/3-1 sigrar, líkt og í riðlakeppninni.
Liðin fá stutta hvíld á milli umferða en 8-liða úrslitin hefjast eftir tæplega tvær vikur. Leikið verður heima og að heiman líkt og í Playoff 6 en eftir það tekur við Final Four. Lokahelgin fer fram á Ítalíu um miðjan maí.
PGE Projekt Warszawa – Itas Trentino
Warszawa og Trentino voru í 2. sæti sinna riðla og mættust í stærsta einvígi umferðarinnar. Trentino hefur lengi verið stórveldi á heimsmælikvarða og varð síðast Evrópumeistari tímabilið 2023/24. Warszawa hefur hins vegar ekki náð miklum árangri í Meistaradeild en staðið sig vel í ógnarsterkri pólskri úrvalsdeild síðustu ár.
Báðir leikir liðanna fóru í oddahrinu en Trentino unnu fyrri leikinn sem fór fram í Póllandi. Warszawa unnu seinni leikinn á heimavelli Trentino og þar var leikin gullhrina. Þar stóð pólska liðið uppi sem sigurvegari eftir 11-15 sigur. Bartosz Bednorz var stigahæstur hjá Warszawa í einvíginu með 31 stig en Theo Faure átti tvo öfluga leiki og skoraði 56 stig, þar af 34 stig í síðari leiknum.
Guaguas Las Palmas – Montpellier
Lið Guaguas kemur frá Kanaríeyjum og leikur þar á sterkum heimavelli. Þeir unnu góðan 3-1 sigur á Montpellier í heimaleik sínum en seinni leikur liðanna fór alla leið í oddahrinu. Þar vann Montpellier 3-2 sigur en Guaguas fer áfram á samanlögðum úrslitum. Guaguas er hálfgert spútniklið en með liðinu leikur til að mynda Osmany Juantorena. Kappinn er orðinn fertugur en var á sínum tíma einn allra besti kantsmassari heims.
Francisco Wallysson Souza var stigahæstur í liði Guaguas með 39 stig í einvíginu. Simon Hirsch skoraði 21 stig í hvorum leik fyrir sig og því 42 stig alls fyrir Montpellier.
Asseco Resovia – Knack Roeselare
Resovia og Roeselare mættust á sterkum heimavelli Resovia í fyrri leik liðanna. Pólska stórliðið vann þægilegan 3-0 sigur á meðan að Roeselare náði sér ekki á strik. Seinni leikur liðanna fór fram á heimavelli Roeselare í Belgíu og var mun jafnari. Það dugði þó ekki til þar sem að Resovia vann 1-3 sigur og tryggði sér sæti í 8-liða úrslitunum.
Yacine Louati skoraði 25 stig fyrir Resovia í einvíginu en hjá Roeselare var hinn norski Oskar Espeland stigahæstur með 26 stig samtals úr leikjunum tveimur.
Einvígi í 8-liða úrslitum
Öll fjögur liðin frá Póllandi eru komin í 8-liða úrslit keppninnar en tvö þeirra mætast innbyrðis. Guaguas mætir ítalska stórliðinu Perugia en þau lið voru einnig saman í riðli fyrr í keppninni. Þar hafði Perugia betur í báðum leikjum (2-3 og 3-1). Lube frá Civitanova mætir Zawiercie, einu af pólsku liðunum í keppninni, og síðast en ekki síst mætast Asseco Resovia og Ziraat Bankkart Ankara.
PGE Projekt Warszawa (Pólland) – LUK Lublin (Pólland)
Guaguas Las Palmas (Spánn) – Sir Sicoma Monini Perugia (Ítalía)
Cucine Lube Civitanova (Ítalía) – Aluron CMC Warta Zawiercie (Pólland)
Asseco Resovia (Pólland) – Ziraat Bankkart Ankara (Tyrkland)
Fyrri leikir fara fram 24.-25. mars og seinni leikir 31. mars – 2. apríl.