Tveir leikir fóru fram í Unbrokendeild karla í kvöld.
Fyrri leikur kvöldsins var viðureign Hamars og Aftureldingar. Hamar hafði fyrir leikinn í dag leikið þrjá leiki, unnið tvo þeirra og tapað einum. Afturelding hafði hinsvegar aðeins leikið einn leik og unnið hann.
Hamar byrjaði leikinn vel og náðu strax góðu forskoti í fyrstu hrinu. Gestirnir náðu hinsvegar hægt og rólega að vinna sig inní leikinn og endaði fyrsta hrina með sigri Hamars 25-22. Hamar byrjaði aðra hrinu líkt og þá fyrstu og náðu fljótt góðu forskoti og virtust með öll tök á leiknum. Þrátt fyrir að hafa aðeins gefið eftir undir miðja hrinu þá var sigur Hamars aldrei í hættu 25-17.
Afturelding kom hinsvegar af meiri krafti inní þriðju hrinu og voru yfirburðir þeirra miklir. Góðar uppgjafir Aftureldingar komu sóknarleik Hamars úr jafnvægi og endaði þriðja hrina með öruggum sigri Aftureldingar 25-12. Það var aðeins meira jafnræði yfir liðunum í upphafi fjórðu hrinu en um miðja hrinuna setur Afturelding í lás og aftur eru yfirburðir þeirra miklir, fjórða hrina endar með sigri Aftureldingar 25-15.
Oddahrinan var æsispennandi en staðan var 8-5 fyrir Aftureldingu þegar liðin skiptu um vallarhelming. Hamar nær svo að jafna í 9-9 og leikar jafnir allt til loka. Ragnar Már Garðarson kláraði svo leikinn fyrir Hamar með stigi beint úr uppgjöf 17-15.
Hamar – Afturelding 3-2 (25-22, 25-17, 12-25, 15-25, 17-15)
Seinni leikur dagsins var svo grannaslagur fyrir norðan þegar KA tók á móti Völsungi.
Völsungur hafði leikið tvo leiki í deildinni og unnið þá báða og voru því með 6 stig í þriðja sæti. KA hafði einnig leikið tvo leiki en aðeins unnið annan þeirra og þá höfðu þeir báðir endað í oddahrinu. KA var því aðeins með 3 stig.
KA menn reyndust hinsvegar sterkari aðilinn í kvöld og unnu leikinn nokkuð þægilega 3-0. KA fer þá í 6 stig eftir sigurinn og uppfyrir Völsung í 3. sæti.
KA – Völsungur 3-0 (25-19, 25-15, 25-23)
Næsti leikur í Unbrokendeild karla er um helgina þegar Þróttur Fjarðarbyggð tekur á móti HK.