Unbroken deildirnar héldu áfram í dag þegar alls fór fram fimm leikir.
Líkt og í gær voru þrír leikir á dagskrá karlamegin en tveir kvennamegin. Dagskráin var sú sama og í gær enda löng ferðalög hjá öllum útiliðunum. Kvennamegin fóru HK og KA með nokkuð þægilega sigra en spennan var mun meiri hjá körlunum.
KA og Hamar áttu jafnan leik í gær þar sem KA vann 3-2. Í dag náðu gestirnir frá Hveragerði fram hefndum en þeir unnu einnig eftir oddahrinu. Fyrir vestan vann Vestri 3-2 sigur í mjög jöfnum leik og í Kópavogi vann Völsungur HK í hörkuleik.
Unbroken deild kvenna
KA 3-0 Þróttur R / BFH (25-14, 25-19, 25-14).
HK 3-0 Völsungur (25-12, 25-15, 27-25).
Unbroken deild karla
KA 2- 3 Hamar (24-26, 25-22, 26-28, 25-22, 10-15).
Vestri 3-2 Þróttur Fjarðabyggð (21-25, 25-22, 25-21, 23-25, 15-10).
HK 1-3 Völsungur (25-21, 24-26, 17-25, 25-27). Ricardo Meucci skoraði 16 stig fyrir HK og Tómas Davidsson bætti við 15 stigum. Hjá Völsungi var Juan Sebastian stigahæstur með 20 stig og Þórarinn Örn Jónsson skoraði 15 stig.