Þróttur Reykjavík tók á móti KA í dag í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla. KA vann fyrsta leik liðanna sem fram fór á Akureyri en Þróttarar freistuðu þess að jafna metin.
KA vann fyrsta leikinn nokkuð sannfærandi þegar liðin mættust fyrir norðan en Þróttarar byrjuðu vel í dag. Þeir leiddu nánast frá upphafi fyrstu hrinu og unnu að lokum 25-21 sigur. Þeir héldu áfram að gera vel og unnu aðra hrinu einnig 25-21.
Leikurinn snerist algjörlega við eftir aðra hrinu þar sem að KA komst loks á skrið. Akureyringar unnu næstu tvær hrinur 19-25 og tryggðu sér oddahrinu. Þróttarar virtust þreyttir og KA kom inn í oddahrinuna sem líklegri aðilinn. Annað kom á daginn en eftir hnífjafna hrinu vann Þróttur 15-12 sigur og leikinn þar með 3-2. Þróttur Reykjavík hefur því jafnað einvígið 1-1 og heldur spennan áfram á Akureyri á fimmtudag, sumardaginn fyrsta.