Þróttur R og KA unnu sannfærandi sigra

Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla í kvöld. Aðeins er um mánuður eftir af deildarkeppninni og baráttan mikil, sérstaklega um efstu sætin.

Þróttur Reykjavík og HK mættust í Laugardalshöll þar sem Þróttarar voru mun líklegri fyrirfram. Heimamenn byrjuðu leikinn vel og voru fljótt komnir með þægilegt forskot. Þeir unnu fyrstu hrinu sannfærandi og héldu uppteknum hætti í annarri hrinu. HK gerði betur í þriðju hrinunni og Þróttarar gáfu aðeins eftir. Liðin skiptust á stigum en Þróttur slapp með skrekkinn og vann með minnsta mun. Þróttur R vann leikinn því 3-0.

Fyrir norðan mættust KA og Völsungur en leikið var í KA-heimilinu á Akureyri. Eftir tvö töp um helgina kom KA liðið sterkt til leiks í kvöld og vann yfirburðasigur í fyrstu hrinu. Önnur hrinan var mun jafnari og voru Húsvíkingar skrefi á undan hluta hrinunnar. KA gerði hins vegar betur á lokakaflanum og tók 2-0 forystu. Þriðja hrina var einnig jöfn en í þetta skiptið vann Völsungur eftir flottan kafla undir lokin.

Fyrstu stigin í fjórðu hrinunni fóru vel af stað fyrir Völsung en fljótt stakk KA af. Heimamenn náðu mjög þægilegu forskoti og unnu öruggan sigur sem tryggði 3-1 sigur í leiknum. KA fékk því öll þrjú stigin sem munu eflaust reynast dýrmæt í toppbaráttunni. KA og Þróttur R eru í harðri baráttu en Hamar og Afturelding standa betur fyrir lokakafla deildarkeppninnar. Keppni í Unbroken deild karla heldur áfram laugardaginn 7. febrúar með þremur leikjum.

Úrslit kvöldsins í Unbroken deild karla – Miðvikudagur 4. febrúar

Þróttur Reykjavík 3-0 HK (25-21, 25-15, 25-23)

KA 3-1 Völsungur (25-14, 25-23, 20-25, 25-18)